top of page

 

 

Verð er 42.000 kr ef greitt er fyrir 10.nóvember. Eftir þann tíma hækkar gjaldið í 47.000 kr.

Ef óskað er eftir því að vera í eins manns herbirgi þá hækkar gjaldið í  55.000 kr fyrir 3.nóv og síðan 62.000 kr eftir þann tíma.

Innifalið í verði er; gisting í 3 nætur, matur alla dagana þ.e morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur, og öll dagskrá.

Reikningsupplýsingar: 0137-05-060944, kt 070482-4609

 

Kvennabúðirnar verða haldnar í fallegu umhverfi á Sólheimum í Grímsnesi þetta árið. Fögur náttúra og gott andrúmsloft einkennir svæðið sem gerir dvölina þar enn ánægulegri. Í frítíma er hægt að skella sér á kaffihúsið Grænu könnuna, farið í göngu, heitan pott, verslað í versluninni Völu eða listhúsinu.

Á kvöldin verður létt og skemmtileg dagskrá þar sem við syngjum, leikum okkur og eða látum fara vel um okkur. 

Herbergin á Sólheimum eru tveggja manna herbergi. Rúm eru uppábúin og handklæði fylgir.

Boðið verður upp á góðan og næringarríkan mat- aðeins grænmetisfæði. Ef einhverjar eru með ofnæmi eða annað slíkt, ber að láta okkur vita með fyrirvara á póstfangið egerkona@gmail.com

 

Það sem gott er að hafa með sér: 

*Jógadýna

*Gæra/ullarteppi

*Sjal um herðarnar

*Þægileg föt (ljós föt eru góð fyrir áruna) og næg til skiptanna (því kundalini jóga tekur á!) 

*Teppi til að nota í slökun

*Púði til að sitja á

*Skriffæri og bók til að skrifa í 

*Vatnsflaska og eða lokað drykkjarmál fyrir te

*Inniskór eða hlýir sokkar

 

Einnig mælum við með: 

*Dagbók

*Sunddót  

*Útvistarfatnaður 

*Prótínsnakk á milli mála ef þú ert vön mikill prótíninntöku

 

Vinsamleg beiðni: Sumar konur eru viðkvæmar fyrir sterkri lykt og biðjum við þátttakendur að taka tillit til þessa og vera ekki með lyktarsterk ilmvötn eða aðrar lyktarsterkar snyrtivörur sem gætu valdið óþægindum. 

 

 

Meira um Sólheima hér:

 

Upplýsingar

“Not only are you powerful, you are prestigious. Not only are you prestigious, you are beautiful. Not only are you beautiful, you are consciousness. Not only are you consciousness, you are the spirit. Not only are you the spirit, you are the security of the future, the most bountiful beauty ever God created. Men call it ‘woman.’” 

bottom of page